Sumarsýning 2025: Hún er ég - Prjónatilveran

19. júní 2025

Sumarsýning 2025: Hún er ég - Prjónatilveran

Í landi síbreytilegs ljóss og órólegra sjávarfalla, þar sem ull hefur um aldir verið spunnin í hlýju og myndað minningar, prjónar Halla Lilja Ármannsdóttir sögur með þræði. Textíllistakona með djúpar rætur í prjónaskap, hefur hún verið samofin garni frá barnsaldri – fingur hennar lærðu taktfestu lykkjanna líkt og nótur á píanó.

Halla er fædd og uppalin í Kópavogi en ferðalag hennar hefur einkennst af hreyfingu – milli landsvæða, greina og hefða. Sextán ára flutti hún norður til Akureyrar til að stunda nám við Menntaskólann á Akureyri, þar sem hún lagði stund á félagsgreinar. Árið 2015 dvaldi hún í París, reikaði um þröngar götur, lærði málið og upplifði áragamla list, áður en vindarnir báru hana aftur heim.

Prjónaskapurinn var alltaf til staðar – þráður sem aldrei slitnaði. Stutt nám í sálfræði við Háskóla Íslands staðfesti aðeins hið óumflýjanlega: höndunum langaði að skapa. Árið 2018 fylgdi hún þeirri köllun til London, þar sem hún nam textílhönnun við London College of Fashion. Þar dýfði hún sér í alkemíu textíla – vél- og handprjóns, og uppgvötaði viðkvæman styrk Íslenska hrosshársins. Hún lauk námi með heiðursgráðu árið 2021 og sneri aftur heim með list sína – til upprunans.

Heimurinn tók að veita athygli. Árið 2022 voru verk Höllu sýnd í danska sjónvarps þættinum Feldthaus og Bagger: í frjálsu lykkjufalli, sem síðar var sýndur á RÚV 2023. Hún hefur tvisvar tekið þátt í Hönnunar Mars, sýnt á Handverk og Hönnun, og lagt sitt af mörkum til að innleiða stafræna prjónavél hjá Textílmiðstöð Íslands. Sumarið 2024 hélt hún sína fyrstu einkasýningu, Samhljómur, í Kirsuberjatrénu, áður en hún hélt til Slóveníu til að kenna og miðla handverkinu með O2oop-textílhópnum.

Fyrir Höllu er prjón meira en tækni – það er samtal við tímann sjálfan. Hún teygir á mörkum hefða, blandar saman fortíð og framtíð, mjúkri ull og ósveigjanlegu hrosshári, vélrænni nákvæmni og mannlegri snertingu. Verk hennar eru endurómur þeirra sem á undan komu – og hvísl til þeirra sem eftir munu fylgja.

Skrifað af sýningastjóra, Corran Olivia Green
Íslensk þýðing
Hallaarmanns.com
13. desember 2024
Laugardaginn 14. desember kl. 15:00 verður hinn hefðbundni Upplestur á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu. Séra Sigurður Ægisson , mun kynna og lesa úr bókum sínum: Völvur á ísland i og Okei , Leitin að upphafi og sögu þekktasta orðatiltækis í heimi. Þá mun Magnús Ólafsson, kynna bók sína Öxin, Agnes & Friðrik, síðasta aftakan á Íslandi. Eftir lesturinn verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur og höfundar selja og árita bækur sínar. Eigum saman notalega stund í safninu okkar. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
27. maí 2024
“Skynið fyllir vitund” er heiti sérsýningar safnsins sem opnuð verður 1. júní nk. kl. 15:00. Sýningin er unnin af Björgu Eiríksdóttur
28. maí 2022
Ágætis aðsókn var að Heimilisiðnaðarsafninu á árinu og fjöldi safngesta hefur náð sér á strik eftir Covid lægðina og var rúmlega 3500 manns.